Árið 1996 var Kastljós vikulegur þáttur á RÚV þar sem Pjetur H. Matthíasson tók fyrir ýmis samfélagsmálefni. Þá var ég búin að vera tæpt ár á ircinu og komin í góðan félagsskap skemmtilegra háskólanema og vef-frumkvöðla og var beðin ásamt fleira góðu fólki að segja frá því í þættinum hvernig við notuðum netið.
Þessi þáttur átti eftir að eiga afgerandi áhrif á framtíð mína því þarna var ég kynnt fyrir íslensku þjóðinni sem “netstelpan” og starfsvettvangur minn innan netheima var samasem ráðinn.
Þar sem ég hef ákveðið að fara að tjá mig meira og skipulegar um vefmál ákvað ég að blása aftur lífi í lénið mitt.
Það hefur mikið vatn runnið til sjávar frá því ég hélt úti this.is/thorlaug og sinnti hlutverki túristaráðgjafar sem ein af fáum persónulegum heimasíðum listuðum á Yahoo fyrir Ísland. Ég velti enn fyrir mér hvað hefði orðið um líf mitt ef ég hefði gripið vef-túristatækifærið á sínum tíma – rétt eins og ótal aðrar vefhugmyndir sem ég hef veitt og sleppt á þessum árum.
Núna er ég aftur að springa úr hugmyndum en þær eru annars eðlis og snúa að því hvað við meinum eiginlega með allri þessari tækninotkun og hvenær hún sé farin að skaða okkur.
Ég hef sterkar skoðanir á því hvað samfélagsmiðlar gera við tilfinningalífið okkar – bissnesmódelið þeirra gengur beinlínis út á að valda tilfinningalegum óstöðugleika, en það er þus fyrir annan dag.
Gaman að sjá ykkur aftur!